...rúnin...
11.05.2006 17:15:16 / runin

Flutt...

Er flutt á www.runin.bloggar.is

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.05.2006 14:31:52 / runin

meeee

Sá skemmtilega mynd í Blaðinu áðan. Hún var tekin á Austurvelli 1932 og sýndi hóp af kindum á Austurvelli sem voru að bíða eftir því að fara í skip. Eitthvað finnst mér þetta mjög heimilislegt, að hafa kindur svona á beit í miðborg Reykjavíkur.

Þá vaknaði hjá mér sú hugmynd að fyrst flytja eigi Flugvöllinn annað hvort útá sjó eða uppá fjöll og Árbæjarsafn útí Viðey, afhverju þá ekki að flytja Húsdýragarðinn á Austurvöll? Held að túristarnir yrðu nú hrifnir af því að hafa kindur og kýr og allskyns búfénað niðrí bæ. Svo losna þá líka byggingarlóðir í Laugardalnum.

Og hverjum er svossum ekki sama þó að Reykvíkingar hafi engin græn svæði þar sem hægt er að leggjast niður og sleikja sólina, sötra öl á góðum degi, spila frisby, fótbolta eða hackysack eða bara sýna sig og sjá aðra? Eigum við ekki bara að byggja yfir hvert einasta grasstrá í Reykjavík, svo allir geti búið "niðrí bæ"? Krakkar þurfa ekkert að hafa grasflöt til að spila fótbolta eða leika sér, geta þau ekki gert það í Playstation tölvunni sinni?

Við erum orðin svo forheimskuð af uppsveiflunni síðust ár að fólk heldur að það sé misheppnað ef það á ekki 150-200 fm húsnæði á besta stað í bænum, með glænýjum innréttingum og merkjahúsgögnum, 2 bíla, sumarbústað, gullkort í Laugar (og noti það 5 sinnum í viku) og milljarð inná banka fyrir þrítugt, ens og Bjarni Benidiktsson þingmaður og mannvitsbrekka orðaði það einhverntíman.

Til að allt þetta sé mögulegt þá skellum við börnunum í dagvistun 8-10 tíma á dag, svo er þeim hent fyrir framan playstation eða vídjó eftir að búið er að kaupa inn og meðan verið er að elda matinn og svo sett á lyf ef hegðunarvandamál gera vart við sig, því goðin forði foreldrunum frá því að þurfa að takast á við vandamálin og fara að sinna börnunum, skiluru ekki að okkur vantar nýjan sófa, hinn er alveg orðinn 3 ára, og sófi kostar peninga, eða ætlist þið til að við sættum okkur við eitthvað IKEA drasl???

Hvað gerðist? Af hverju eru sófar og innréttingar og bílar orðin mikilvægari en uppeldi barnanna okkar? Amma mín, sem var að eignast þrítugasta og fyrsta afkomanda sinn um daginn, segist vera ríkasta manneskja í heimi því hún á svo stóra fjölskyldu og allir hafa komist til manns, og það bara nokkuð vel, án teljandi vandræða. Þetta er hennar arfleifð, það sem hún skilur eftir sig. Af hverju eru efnislegir hlutir, eins og húsið sem við búum í eða bíllinn okkar orðinn mælistikan á velgengni okkar og hamingju en ekki það hvernig okkur tekst að koma börnunum okkar til manns og hvernig fjölskyldan okkar er?

Hvernig væri að segja upp kortinu í ræktina og fara frekar 5 sinnum í viku með börnunum út að leika eða út og kenna þeim eitthvað um náttúruna sem þau eru hluti af? Kaupið ykkur IKEA sófa (eða sættið ykkur við að það er allt í lagi að eiga þriggja ára gamlan sófa) og notið peninginn til að ferðast um landið með börnunum ykkar, eyðið tíma með þeim, því það eru þessar stundir sem raunverulega sklja eitthvað eftir sig.


» 3 hafa sagt sína skoðun

07.05.2006 22:36:16 / runin

úfff....

Loksins er ég búin að komast að því af hverju mér gengur alltaf svona illa í vorprófum, ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ LÆRA ÞEGAR VEÐRIÐ ER SVONA GOTT.
Auk þess fyllist ég alltaf þvílíkri ferða og náttúruþrá á þessum árstíma þannig að ég er algjörlega viðþolslaus í bænum.
Þessvegna fell ég frekar á vorprófum, er alltaf einhverstaðar uppá fjöllum í stað þess að sitja yfir bókunum, eins og í dag, bara réð ekki við mig, ég meina, hvað er betra en að vera útí náttúrunni, burt frá öllu stressinu og látunum í bænum, þegar veðrið er svona.

Mission: Geta lesið meðan ég labba á fjöll.

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 09:14:37 / runin

Hvernig á að kúga með áróðri?

Verð að deila þessum ummælum með ykkur. Þetta er úr greininni Philosophy and the Corruption of Language eftir Caleb nokkurn Thompson:

"The threat of communism, for example, presented as an absolute evil, rather than as evil in so far as it, for example, restricts human liberty, justifies without contradiction any action for the sake of it's defeat, even the restriction of human liberty."

Held að þarna sé góurinn kominn með góða lýsingu á því sem var að gerast í BNA í kalda stríðinu og því sem er í gangi núna vegna hryðjuverka"ógnarinnar".

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.04.2006 21:25:47 / runin

The two towers...

Svo virðist sem ekki megi hallmæla Degi Eggerts án þess að stuðningsmenn hans rjúki upp til handa og fóta og komi honum til varnar og skýri út fyrir okkur fávísum múginum hvað hann var að meina. Farið að minna örlítið á stuðningsmenn annars hrokkinhærðs snáða sem einnig sóttist eftir borgarstjórastóli fyrir nokkrum árum....reyndar fyrir mína tíð.
En til að svara því verð ég að segja að ef ég á að skipta um skoðun á honum þá verður það að vera vegna einhvers sem hann gerir, en ekki vegna þess sem stuðningsmenn hans segja.
And so far I'm not impressed.
Hugsa bara að ég haldi mig við mína Vinstri Græna eins og fyrri daginn. Eða frjálslynda, sem ég reyndar kaus síðast því ég var ekki hrifin af þessari kaldastríðsblokk sem á sínum tíma var sett upp til höfuðs "hinum illu öflum" í borginni.

En nóg um það, eitt próf búið, tvö eftir.
Þá er bara að jafna sig og safna kröftum fyrir næsta slag.

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.04.2006 10:14:23 / runin

Kastljósið í gær

Hið unga og efnilega borgarstjóraefni Samfylkingarinnar sýndi á sér svolítið aðra hlið í Kastljósinu í gærkvöldi. Þegar hann var rökræða við Vilhjálm Þ. um leikskólamálin og Vilhjálmur var eitthvað að tala um af hverju þeir vildu ekki fella niður leikskólagjöldin lét Dagur út úr sér eitt ómálefnalegasta komment sem ég hef heyrt; ,,Eiga konurnar bara að fara aftur heim?"
Þetta komment setur hann í skammarkrókinn með ekki ómerkari mönnum en Kristjáni Jóhannssyni með rauðubrjóstakommentið sitt og Geir Haarde með sætustu stelpuna á ballinu kommentið sitt. Ekki er leiðum að líkjast.
Þessvegna segi ég; skammskamm Dagur. Ég ætlaði að leyfa þér að njóta vafans og hugsanlega kjósa þig í borgarstjórnarkosningunum en þú losaðir þig hratt og örugglega við mitt atkvæði með þessu!


» 4 hafa sagt sína skoðun

26.04.2006 12:10:10 / runin

HAHAHAHAHHAHA

www.hugsjonir.is

Þetta er að verða nýja uppáhaldssíðan mín á eftir blogginu hans Gunnars í Krossinum

Rétt'upp hend sem finnast frjálshyggjufólk fyndið?

» 0 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 16:26:25 / runin

Ufff...

Sorry en ég hef ekki getað bloggað því síðan var eitthvað leiðinleg.....

Anyways, ekkert að frétta, próf og leiðindi, alltaf gaman.
Fór að gefa blóð í gær, í fyrsta skipti og það var næstum liðið yfir mig, enda búið að dæla úr mér hálfum lítra af blóði! Það er ein kókflaska þeinkjúverrímuts!!!! En svo skelltu þær í mig djús og kaffi og muffins og gáfu mér nammi og þá var allt í lagi með mig. (Hmmm.....djús+kaffi+muffins+nammi=blóð??? Hæpið)

En verð að segja tvennt. Djöfull eru auglýsingar að verða pirrandi þessa dagana. Í fyrsta lagi finnst mér þessi ,,Klassísk samtímatónlist" auglýsing FM957 alveg eeeendalaust pirrandi. En hey, hvað er svossem ekki pirrandi við þá blessuðu útvarpsstöð?
Annað: Í gær fékk ég sent heim bréf sem stóð á "Nú þarftu að bregaðst skjótt við" eins og stendur alltaf á bréfum frá Intrum og svoleiðis innheimtum. Hjartað byrjaði að hamast, svitinn spratt fram og ég byrjaði að öskra á kærastann minn hvaða helvítis, andskotans, djöfulsins reikning hefði ég nú ekki fengið sendan og nú þyrfti að fara að borga einhver helvítis, andskotans, djöfulsins innheimtukostnað!! Helvítis lögfræðingar!
En nei, svo þegar ég opnaði bréfið var þetta bara einhver auglýsing frá SKO, sem er nýtt símafyrirtæki sem var að senda mér gíró fyrir 0,- kr mánaðargjald og ég veit ekki hvað.
SKO, ÉG HEFÐI SKO GETAÐ FENGIÐ HJARTAÁFALL, SKO!!!



» 0 hafa sagt sína skoðun

12.04.2006 13:18:36 / runin

Morning

Afsakið bloggletina hérna, en tölvan mín er búin að vera biluð og var bara að komast í lag í fyrradag......

En djöfull eru Íslendingar að fá græðgina í hausinn núna. Eftir að kaupa upp nánast alla Danmörku og halda að við komumst upp með það eru það nú dönsk fyrirtæki sem standa fremst í flokki og spá efnahagskreppu. Hvort sem kreppan er þessum dómsdagsspám frænda okkar að kenna veit ég ekki, en mér sýnist á öllu að hún sé á leiðinni. Ef hún er dönum að kenna er það bara gott á okkur, kennir okkur að vera ekki svona gráðug. En ok, líklega er að koma kreppa, stýrivextirnir hækka og ég með nettan yfirdrátt, þó ekki raðgreiðslur.....það er svosem ekkert að gera við því nema halla sér aftur, hlæja svolítið duglega yfir okkar eigin heimsku og bíða þetta af sér.

Þetta eru jú bara peningar.
Lífið heldur samt áfram.

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.03.2006 14:03:08 / runin

jæja....

Er ekki kominn tími á færslu hérna??

Annars er ekki mikið í fréttum. Er búin að vera að vinna eins og geðsjúklingur til að eiga frí í prófunum og búin að liggja heima í flensu þess á milli, einstaklega skemmtileg blanda....

Annars er gaman frá því að segja að það var haft samband við mig frá Kvennó og ég beðin um að koma og kynna Ásatrúarfélagið fyrir fjórum bekkjum í félagsfræði. Ég er búin að fara í þrjá bekki og fer í fjórða á morgun og þetta er búið að vera virkilega skemmtilegt, krakkarnir áhugasamir og skapast skemmtilegar umræður.

Annað er að við kallinn erum að skipuleggja að fara að labba Laugarvegin, Fimmvörðuhálsinn og Lónsöræfin í sumar og kannski líka eitthvað fyrir norðan Vatnajökul. Til þess að koma okkur í form erum við búin að fara á Esjuna þrjár helgar í röð, nema síðustu, vegna flensunnar, en fórum í staðin í 8 km göngu í Heiðmörk á mánudagseftirmiðdag. Næsta laugardag ætlum við að fara yfir Hengilinn, líklegast frá Nesjavöllum og niður í Víkingsskálann í  Sleggjubeinaskarði. Öllum er guðvelkomið að koma með í þessar göngur, ætlum að halda áfram að fara amk einu sinni í viku. Þetta er helvíti fínt workout og skemmtilegt að kíkja aðeins útúr bænum af og til.

That's it folks.
Rúnin

» 1 hafa sagt sína skoðun

17.03.2006 14:15:19 / runin

Þessvegna viljum við fá einkarekstur í heilbrigðiskerfinu.....

http://www.mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1191039

» 3 hafa sagt sína skoðun

09.03.2006 11:48:44 / runin

Hrósið

Vil hérmeð hrósa samtökunum 78 fyrir að hafa kært Gunnar í Krossinum. Þó ekki séu margir sem taka mark á honum, t.d undirrituð sem les bloggið hans sér til skemmtunar, þá eru því miður þónokkrir einstaklingar sem taka mark á orðum hans og það er slæmt.
Það var komin tími til að einhver sparkaði í rassinn á honum og sýndi að hann væri ekki óhultur í fílabeinsturni eigin fáránleika og þröngsýni sem leyfði honum að segja það sem hann vill um hvern sem er.
Þrátt fyrir að ég lesi þetta mér til skemmtunar, aðallega til að sjá hversu lágt hann getur lagst í þessum pistlum sínum, þá verð ég samt á sama tíma mjög móðguð fyrir hönd samkynhneigðra og múslima og hafa þeir allan rétt til þess að krefjast þess að hann hætti þessu sem snarast.

Baráttukveðjur
Rúnin

» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2006 16:12:54 / runin

JEIII

Bíllinn minn, sem heldur uppá 20 ára afmæli sitt á árinu fékk skoðun í dag eins og ekkert væri.
Þetta finnst mér merkilegt.


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.02.2006 14:11:28 / runin

Nu er det slut...

Jæja, norræna vikan búin og undirrituð tilbúin að snúa aftur til daglegs lífs....það er eftir að búið er að þrífa slotið og þvo allan fataskápinn, sem virtist hafa verið notaður í heild sinni á þessum 5 dögum. Annars hef ég ekki mikið merkilegt að segja ykkur því what happens in Nordic week stays in Nordic week.
Annars er það í fréttum að við kallinn förum að halda uppá ársafmæli fljótlega, því eins og fróðir menn vita þá hófum við okkar vinskap í norrænu vikunni í fyrra. Hugmyndir um hvað skuli gera fyrir kallinn eru vel þegnar (þvegnar?) en það má ekki vera of dýrt....

Annað....í dag eru komnar 118 heimsóknir á þessa síðu í dag og klukkan aðeins tvö, þessvegna þætti mér gaman að vita hverjir það eru sem eru að lesa þetta og þætti vænt um ef allir þeir sem kíkja hér inn merki við sig í kladdann næsta sólarhring svo ég viti hverjir þetta eru.

Svo mælti Rúnin

» 8 hafa sagt sína skoðun

18.02.2006 03:03:37 / runin

Minnet

Minnet! Jag har tappat mitt minnet!
Är jag svensk eller finne?
Kommer inte ihåg

Inne! År jag ut eller inne?
Jag har luckor i minnet
Så'na små alko'hul

Men bestinn'er, man täter med
det brännvin man fär,
där som minnet och helan går!


Btw....það er eitthvað að mygla heima hjá mér, hvad det er vedt jäg inta.....lige som jeg siger, så vedt jeg inte om jeg er dansk, islandsk, finnsk, svensk eller norsk, so hvad som helst passer deg, så er jeg det....ikke også??? (danskerne siger at jeg er dansk hvis jeg siger "ikke også"  men I vider hvordan de dansker er, ikke også?

Kveðja
Rúin, international


» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7